| |
| 1. 2005040 - Lóðarumsókn - Nesvegur 12 | |
Fyrir liggja fimm umsóknir um lóðina Nesvegur 12 og í samræmi við reglur Stykkishólmsbæjar um úthlutun á lóðum fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði er dregið um lóðarúthlutun.
Dregið er úr umsóknum og er umsókn Hafþórs Inga Þorgrímssonar dregin vegna lóðarinnar Nesvegur 12.
Forseti því leggur til að Hafþóri Inga Þorgrímssyni verði úthlutuð lóðinni Nesvegur 12.
Samþykkt samhljóða.
Til máls tók.:HH | | |
|
| |
| 2. 2005003F - Skipulags- og bygginganefnd - 240 | |
| Lagt fram til kynningar. | | Fundargerð 240. fundar skipulags- og byggingarnefndar - 18.05.2020.pdf | | |
|
| 3. 2005002F - Bæjarráð - 613 | |
Lagt fram til kynningar.
Til máls tóku:HH og LÁH | | Fundargerð 613. fundar bæjarráðs - 14.05.2020.pdf | | |
|
| 4. 2005006F - Bæjarráð - 614 | |
| Lagt fram til kynningar. | | Fundargerð 614. fundar bæjarráðs - 28.05.2020.pdf | | |
|
| 5. 2005004F - Atvinnu- og nýsköpunarnefnd - 3 | |
Lagt fram til kynningar.
Til máls tóku:HH og LÁH.
Bókun bæjarfulltrúa L-listans:
Vegna fundargerða nefndarinnar kem ég með eftirfarandi bókun.
Það er greinilega vel unnið í nefndinni og fundargerðin til fyrirmyndar.
Í lið þrjú er fjallað um stöðu hrognkelsaveiða á innanverðum Breiðafirði. Það er alveg ljóst að staðan er dapurleg fyrir okkur Hólmara og framganga ráðherra sjávarútvegsmála í þessu máli vond. Mikilvægt er að taka umræðuna um hvernig framtíðarskipulagið á hrognkelsaveiðum á að vera. Ég tel að ef farið verði í kvótasetningu með framsalsrétti muni það hafa verulega neikvæð áhrif á Stykkishólm til framtíðar.
Í lið átta er fjallað um opnunartíma Eldfjallasafnsins. Ég vil lýsa yfir ánægju með að nefndin er sammála marg fram komnum áherslum L-listans og vill loka safninu og nota húsið í önnur verkefni. Það er þó ekki rétt hjá nefndinni þegar hún leggur til að segja upp samningi við eiganda Eldfjallasafnsins. Sannleikurinn er sá að enginn samningur er í gildi milli Stykkishólmsbæs og eigenda safnsins og því óþarft að segja honum upp. Kostnaður við safnið var á árinu 2019 um 8,5 milljónir og vonandi er það síðasta framlag Stykkishólmsbæjar í það safn.
Lárus Ástmar Hannesson L- lista | | Fundargerð 3. fundar atvinnu- og nýsköpunarnefndar 22.05.2020.pdf | | |
|
| |
| 6. 2006002 - Fundargerð aðalfundar Jeratúns ehf. | |
| Lagt fram til kynningar. | | Aðalfundur Jeratúns 29.05.2020.pdf | | |
|
| 7. 2006001 - Fundargerð stjórnar Jeratúns ehf. | |
| Lagt fram til kynningar. | | Fundargerð Jeratúns nr. 60. 29.05.2020.pdf | | |
|
|
| 9. 2005081 - Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra vegna greiningar á fjármálum sveitarfélaga í kjölfar COVID-19 | |
| Lagt fram til kynningar. | | Til sveitarstjórna landsins.pdf | | |
|
| 10. 2005070 - Fundargerðir Breiðafjarðarnefndar | |
| Lagt fram til kynningar | | 178. fundur Breiðafjarðarnefndar.pdf | | |
|
|
| 12. 2005054 - Bréf frá Eftirlitsnefnd vegna COVID-19 | |
| Lagt fram til kynningar. | | EFS bréf til sveitarstjórna maí 2020.pdf | | |
|
|
|
| |
| 15. 2004032 - Ársreikningur 2019 - Síðari umræða | |
Ársreikningur Stykkishólmsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2019 er tekinn til síðari umræðu. Ársreikningur Stykkishólmsbæjar er gerður í samræmi við sveitarstjórnarlög, lög um ársreikninga og reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga og auglýsingar ráðuneytis sveitarstjórnarmála um reikningsskil sveitarfélaga. Vísað er til yfirferðar endurskoðenda við fyrri umræðu þann 30. apríl síðastliðinn. Engar breytingar hafa orðið á ársreikningnum frá fyrri umræðu. Endurskoðandi Stykkishólmsbæjar mun árita ársreikninginn með fyrirvaralausri áritun.
Bæjarstjóri gerir grein fyrir helstu atriði ársreiknings Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2019:
Rekstrarniðurstaða Stykkishólmbæjar (A og B hluta) samkvæmt ársreikningi sveitarfélagsins árið 2019 jákvæð um 80,5 millj. kr. og rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 32,8 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi, en rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði var jákvæð um 248 millj. kr. Samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2019 var gert ráð fyrir 41 millj. kr. í rekstrarafgang og 226 millj. kr. fyrir afskriftir og fjármagnsgjöld, en samkvæmt niðurstöðum ársreiknings varð rekstrarafkoman umtalsvert betri en áætlun gerði ráð fyrir eins og framangreindar tölur bera með sér.
Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2019 nam 926,8 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta um 1.051,5 millj. kr.
Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2019 námu 1.720,8 millj. kr. samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A- bæjarsjóð og B- hluta stofnanir og fyrirtæki, en þar af námu rekstrartekjur A-hluta þ.e. bæjarsjóðs 1.343,4 millj. kr. Rekstrargjöld A og B hluta námu 1.472,4 millj. kr. Þar af námu rekstrargjöld A-hluta bæjarsjóðs 1.181,5 millj. kr.
Álagningarhlutfall útsvars var 14,52%. Álagningarhlutfall fasteignaskatts í A-flokki var 0,39%. Í B-flokki var álagningarhlutfallið 1,32% sem er lögbundið hlutfall og í C-flokki var álagningarhlutfallið 1,57%, en sveitarstjórnir hafa heimild til að hækka álagningarhlutfall í A og C-flokki um allt að 25%. Útsvartekjur og fasteignagjöld gefa hærri tekjur sem nemur um 4,1% sem helgast m.a. af fjölgun fasteigna og aukinna umsvifa atvinnurekenda í Stykkishólmi á síðasta ári.
Veltufé frá rekstri samstæðunnar hækkar frá því að vera 157,4 millj. kr. árið 2018 í 195,3 millj.kr. árið 2019. Handbært fé í árslok 2019 var kr. 70,3 millj. kr.
Hafnarsjóður var rekin með u.þ.b. 19,2 millj. kr. rekstrarafgangi sem stafar að mestu af aukinni umferð farþegaskipa, aflagjalda og annara umsvifa. Fráveita var rekin með 19,0 millj. kr. rekstrarafgangi sem er einnig nokkur hækkun á milli ára. Varðandi aðrar B-hluta stofnanir er rekstrarniðurstaða þeirra með þeim hætti hjá búsetu- og þjónustuíbúðum er neikvæður rekstrarafgangur sem nemur 0,8 millj. kr. og rekstrarafkoma Dvalarheimilis aldraðra í Stykkishólmi var neikvæð um 18,6 milljónir kr. Aftur á móti er jákvæð rekstrarafkoma af félagslegar íbúðum 19,6 milljón kr. sem skýrist að stærstu leyti af söluhagnaði Silfurgötu 18b, sbr. skýring 7 í fyrirliggjandi ársreikningi.
Helstu fjárfestingar ársins 2019 eru: lóð við Grunnskóla og Amtbókasafn að upphæð 68,9 millj.kr., framkvæmdir við gangstéttar, stígagerð og ýmsum endurbótum á gatnamannvirkjum ásamt deiliskipulagsvinnu er að upphæð 34,5 millj.kr., lagfæring á Íþróttamiðstöð að upphæð 7,7 millj.kr., endurbætur húsnæði Þjónustumiðstöðvar Stykkishólmsbæjar 4,4 millj.kr. og ljósleiðaravæðing stofnanna bæjarins 6,2 milljónir.
Skuldir A og B hluta við lánastofnanir nema 1.786,2 millj. kr. og skiptast í langtímalán að fjárhæð 1.623,1 millj.kr og næsta árs afborgsanir langtímalána að fjárhæð 163 millj. kr. Þar af nema skuldir A hluta 1.440,4 millj. kr. Langtímaskuldir sveitarfélagsins hafa lækkað árinu 2019, en afborganir af lánum á síðasta ári námu 173 millj. kr. og ný lán á árinu námu 103 millj. kr.
Skuldaviðmið A og B- hluta er 112% árið 2019, en viðmiðið sveitarstjórnarlaga miðast við að skuldir séu hærri en 150% af tekjum, Til samanburðar var skuldaviðmið sveitarfélagsins 120% árið 2018, 138% árið 2017, 121% árið 2016, 131% árið 2015, 136% árið 2014 og 153% árið 2013 af skatttekjum. Skuldahlutfall A og B hluta sveitarfélagsins var 137% árið 2019, samanborið við 144% árið 2018, 128% árið 2016, 144% árið 2014, 159% árið 2012 og 190% árið 2010. Rekstrarjafnvægi áranna 2017-2018-2019 er jákvætt um 77,2 milljónir kr., en rekstrarjöfnuður áranna 2016-2018 var jákvæður um 40,3 milljónir króna. Samkvæmt framangreindu er ljóst að fjárhagstaða Stykkishólmsbæjar í árslok 2019 er vel innan þeirra fjárhagslegu viðmiða sem sveitarstjórnarlög og reglugerðir þeim tengdum kveða á um, en þau viðmið leggja þær kvaðir á sveitarfélög að standast jafnvægisreglu og skuldareglu sveitarstjórnarlaga.
Í skýrslu bæjarstjóra, bæjarráðs og bæjarstjórnar með ársreikningi er sérstaklega getið um COVID-19 heimsfaraldurinn sem nú gengur yfir og mun hafa veruleg áhrif á mörgum sviðum um allan heim, þar með talið efnhagsleg. Veruleg óvissa ríkir um efnhagsleg áhrif faraldursins s.s. vegna óvissu um hve lengi hann mun vara og hver áhrifin munu verða eftir að honum lýkur. Gera má ráð fyrir því að rekstur Stykkishólmsbæjar verði ekki undanskilin áhrifum þessa, t.a.m. með lægri skatttekjum og öðrum tekjum, frestunar gjalddaga og aukinna útgjalda sem endurspeglast í fyrirliggjandi viðaukum við fjárhagsáætlun 2020. Það er hins vegar kostur að geta tekist á við fyrirliggjandi efnhagsleg áhrif COVID-19 faraldursins með jákvæðustu rekstrarafkomu bæjarins frá síðustu aldramótum í farteskinu.
-----
Bókun bæjarfulltrúa L-lista:
Það er hlutverk bæjarfulltrúa að bera saman niðurstöðu reikninga sveitarfélagsins milli tímabila og einnig milli sveitarfélaga. Reikningar Stykkishólmsbæjar sýna í hversu þröngri stöðu reksturinn er. Hagnaðurinn er að mestu byggður á góðri afkomu hafnarinnar og fráveitunnar auk sölu eignar auk þess sem verðbólga var lág á síðasta ári. Neikvæð niðurstaða var á rekstri Dvalarheimilisins. Framkvæmdir eru að mestum hluta greiddar með lántöku. Stóraukinn skuldsetning undanfarinna ára gerir það að verkum að við erum í slæmri stöðu til að takast á við niðursveiflu eins og þeirri sem blasir við. Þetta er vond staða að vera í ekki síst eftir margra ára uppsveiflu í rekstrarumhverfi sveitarfélaganna. Það er þó greinilegt að á ákveðnum sviðum hefur náðst árangur í rekstrinum en þó þarf að gera betur.
Lárus Ástmar Hannesson Bæjarfulltrúi L-listans
Bókun bæjarfulltrúa H-lista: H-listinn er stoltur af rekstrarniðurstöðu fyrir árið 2019, þar sem rektrarafgangur er rúmlega 80 millj. kr. Helstu lykiltölur ársreiknings sýna að við erum á réttri leið. Þar má nefna að skuldaviðmið er komið í 112%, en það var 120% árið 2018, eiginfjárhlutfall er á góðri uppleið, framlegðarhlutfall í rúmlega 14% og skuldahlutfall hefur farið úr 144% í 137%. Það hefur ekki verið dregið úr þjónustu við bæjarbúa s.l. ár og viljum við þakka forstöðumönnum og starfsmönnum fyrir þeirra vinnu og útsjónarsemi við að halda uppi sama þjónustustigi um leið og aðhaldi hefur verið beitt í rekstri. Það er styrkur að fara inn í slíkt óvissutímabil sem framundan er með þessar tölur í farteskinu. Við undirrituð þökkum starfsfólki bæjarins fyrir að standa vel að rekstri sveitarfélagsins á árinu 2019 og fyrir þá miklu eljusemi og ábyrgð sem sýnd hefur verið sem endurspeglar sig í fyrirliggjandi rekstrarniðurstöðu. Að öðru leyti vísa bæjarfulltrúar H-listans til yfirferðar og bókunar bæjarstjóra og fyrirliggjandi gögn.
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir Gunnlaugur Smárason Þóra Stefánsdóttir Steinunn I. Magnúsdóttir
-----
Ársreikningur 2019 var borinn undir atkvæði og samþykktur samhljóða.
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur á fundi sínum í dag 4. júní 2020 afgreitt ársreikning fyrir bæjarsjóð og B-hluta fyrirtæki bæjarins vegna ársins 2019 að loknum tveimur umræðum í bæjarstjórn og umfjöllun í bæjarráði. Löggiltur endurskoðandi bæjarins hefur kynnt athugun sína á fjárreiðum bæjarins og sett fram ábendingar og lagt mat á reikninginn í endurskoðunarskýrslu sem liggur fyrir sem fylgiskjal með ársreikningnum. Um einstaka liði í ársreikningi er vísað til skýrslu endurskoðanda og skýringar við ársreikninginn sem verður birtur á heimasíðu bæjarins.
Bæjarfulltrúar og bæjarstjóri árituðu síðan ársreikninginn.
Til máls tóku:HH,JBJ,SIM og LÁH | | Stykkishólmsbær Samstæða 2019-síðari umræða.pdf | | Stykkishólmsbær_Endurskoðunarskýrsla 2019_síðari umræða.pdf | | |
|
| 16. 2005075 - Viðauki 2 við Fjárhagsáætlun 2020-2023 | |
Bæjarstjórn samþykkir viðauka 2 við fjárhagsáætlun Stykkisshólmsbæjar 2020-2023 með fimm atkvæðum bæjafulltrúa H-og L-lista, en bæjarfulltrúar O-lista sátu hjá.
Til máls tóku:HH,HG,ÞS,LÁH,GS og JBJ
Bókun bæjarfulltrúa O-lista: Öllum stofnunum Stykkishólmsbæjar hefur verið gert að gæta aðhalds og sparnaðar í rekstri. Forstöðumenn, skólastjórar og starfsfólk Stykkishólmsbæjar hefur lagt mikið á sig til að hagræða og spara í rekstri sinna stofnana og ber að þakka fyrir það. Bæjarstjórn ætti að vera besta fyrirmyndin og leiðandi í þessari vinnu.
Undirrituð samþykkja ekki viðauka 2 vegna verkefna sem í honum eru.
Viðauki 1 var samþykktur á þeim forsendum að ráðast ætti í 68 milljón króna framkvæmd við fráveitumál í Maðkavík. Því verkefni var frestað því hagkvæmara þótti að framkvæma þar sem virðisauki fæst endurgreiddur. Taka undirrituð undir þá ákvörðun.
Því fjármagni sem verja átti í fráveituna er í viðauka 2 dreift á mörg smærri verkefni. Undirrituð telja mikilvægt að draga úr tapi og lántökum eins og kostur er. Verja þarf fjármunum að vandlega athuguðu máli og forgangsraða verkefnum eftir mikilvægi fyrir íbúa.
Undirrituð telja m.a. eftirfarandi verkefni ekki í forgangi á þessum tímum, framkvæmdir á flugstöð enda liggur ekki fyrir hver notkun á húsinu á að vera í framtíðinni. Endurnýjun á heimasíðu sem var endurnýjuð á síðasta kjörtímabili og hefur 7 milljónum verið varið í heimasíðuna síðan þá.
Okkar Stykkishólmur Haukur Garðarsson Erla Friðriksdóttir
Bókun bæjarfulltrúa H-listans: Bæjarfulltrúar H-listans benda á að ekki sé, með viðauka þessum, verið að hreyfa við áður samþykktum fjárheimildum fjárfestinga sem samþykkt var samhljóða á bæjarstjórnarfundi í apríl. Núverandi breytingar á fjárfestingaráætlun fela í sér áherslubreytingar á einstaka liðum og taka mið af fjárhagslegum og samfélagslegar aðgerðum Stykkishólmsbæjar til viðspyrnu og varna vegna Covid-19 sem bæjarstjórn samþykkti á sama fundi sem og þeim aðgerðum sem Alþingi hefur gripið til vegna heimsfaraldursins, þ.m.t. endurgreiðsla á virðisaukaskatti. Hvað varðar flugstöðina telja bæjarfulltrúar H-listans að finna megi henni tilgang og að ákveðin tækifæri gætu verið fólgin í nýtingu húsnæðisins til lengri tíma enda er húsnæðið ljósleiðaratengt. Hins vegar á eftir að móta stefnu um framtíðarhlutverk hússins og vert að taka þá umræðu og eru fastanefndir hvattar til þess að koma með tillögur að framtíðarmöguleikum sem í húsnæðinu felast, líkt og ungmennaráð og atvinnu- og nýsköpunarnefnd hafa þegar velt upp.
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir Gunnlaugur Smárason Steinunn I. Magnúsdóttir Þóra Stefánsdóttir
| | Viðauki 2 Fjárhagsáætlun 2020-2023 - vefur.pdf | | |
|
| 17. 1906011 - Erindi frá Hesteigendafélagi Stykkishólms varðandi beiðni um breytingu á deiliskipulagi á svæði félagsins við Fákaborg | |
Bæjarstjórn samþykkir deiliskipulag Fákaborgar og að deiliskipulagið verði sent Skipulagsstofnun til yfirferðar og auglýsing um gildistöku þess birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Lárus sat hjá vegan tengsla. | | Sth fákaborg auglýsing jökli skipulag mars20 (003).pdf | | 200317-Fákaborg-Deiliskipulagsbreyting-Útgáfa-01.pdf | | 190610-Bréf hesteigandafélgasins-Skipulagbreyting.pdf | | 200317-Fákaborg-Deiliskipulagsbreyting-DRÖG--.pdf | | |
|
| 18. 2005079 - Innkaupareglur Stykkishólmsbæjar | |
| Bæjarstjórn samþykkir að vísa innkaupareglum Stykkishólmsbæjar til frekari vinnslu í bæjarráði. | | |
|
| 19. 2004039 - Breyting á reglum um úthlutun á lóðum fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði | |
| Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa breytingum á reglum um úthlutun á lóðum fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði hjá Stykkishólmsbæ til frekari vinnslu í bæjarráði. | | Reglur um úthlutun á lóðum fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði - Bæjarráð - 26.05.2020.pdf | | Breytingartillaga um breytingu á reglum um úthlutun á lóðum fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði hjá Stykkishólmsbæ.pdf | | |
|
| 20. 2005055 - Sóknarfæri í tengslum við störf án staðsetningar | |
| Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra og formanni atvinnu og nýsköpunarnefndar að vinnu málið áfram í samræmi við fyrirliggjandi gögn og afgreiðslu atvinnu- og nýsköpunarnefndar og móta tillögur um kosti þess að staðsetja störf í Stykkishólmi. | | |
|
| 21. 2001017 - Reglur um úthlutun búseturéttaríbúða í Stykkishólmi | |
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að skipaður verði starfshópur með það hlutverk að endurmóta reglur um búseturéttaríbúðir í Stykkishólmi.
Í starfshópnum eru:Magnús Ingi Bæringsson formaður,Guðrún Anna Gunnarsdóttir,Birta Antonsdóttir,Þór Örn Jónsson og Jón Sindri Emilsson.
| | Minnisblað bæjarstjóra varðandi búseturétt.pdf | | |
|
| 22. 2005057 - Aðalfundarboð samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi | |
Bæjarstjórn tilnefnir Jakob Björgvin Jakobsson, sem aðalmann, og Hrafnhildi Hallvarðsdóttur, sem varamann.
Samþykkt samhljóða. | | aðalfundarboð 2020.pdf | | |
|
| 23. 2004033 - Kennsklukvóti Gunnskólans í Stykkishólmi fyrir skólaárið 2020-2021 | |
| Bæjarstjórn staðfestir samhljóða ákvörðun bæjarráðs um að úthluta Grunnskólanum í Stykkishólmi samtals 410 kennslustundum (kennslukvóta). | | |
|
| 24. 2006006 - Fasteignir Stykkishólms ehf. | |
Bæjarstjórn staðfestir umboð bæjarstjóra samhljóða.
Til máls tóku:HH og JBJ | | 2.2 - 20200527_DRÖG_Fasteignir Stykkishólms ehf_samþykktir.pdf | | |
|
| 25. 2006007 - Kosning í Hafnarstjórn | |
Forseti bæjarstjórnar leggur til að Gunnar Ásgeirsson taki sæti Helga Haraldssonar sem varamaður í Hafnarstjórn. Tillaga samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 26. 2005020 - Hrognkelsaveiðar á innanverðum Breiðafirði 2020 | |
Bæjarstjórn tekur undir ályktun atvinnu- og nýsköpunarnefndar.
Lárus Ástmar Hannesson sat hjá við afgreiðslu málsins.
Til máls tóku:HH,SIM,ÞS og LÁH | | Álytkun Atvinnu- og nýsköpunarnefndar.pdf | | Bókun 613. fundar bæjarráðs vegna grásleppuveiða.pdf | | Ályktun bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar vegna stöðvunar veiða á grásleppu - 6. maí 2020.pdf | | |
|
| 27. 1808022 - Minnispunktar bæjarstjóra | |
| Bæjarstjóri gerði grein fyrir minnispunktum. | | Minnispunktar bæjarstjóra - 5. júní 2020.pdf | | |
|